Skilmálar

1. GR. ALMENNT
Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun S.Bogason ehf., www.sbogason.is.
Um notkun vefsíðu og vefverslunar S.Bogason ehf. gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun S.Bogason ehf. samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.
S. Bogason ehf, kt. 570523-1120, er staðsett við Stórateig 10.
Símanúmer er 854-8819. Ef þú hefur einhverjar ábendingar um vefverslun eða þjónustu, biðjum við þig um að senda okkur tölvupóst á netfangið pantanir@sbogason.is.
Sért þú undir 16 ára aldri viljum við vekja athygli þína á að nauðsynlegt er að þú og forráðamenn þínir kynnið ykkur skilmála þessa áður en þú skráir þig inn á síðuna.
S.Bogason ehf. áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.

2. GR. VERÐ
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.
S.Bogason ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.

3. GR. VÖRUR TIL EINKANOTA
Vörurnar í vefverslun S.Bogason. eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum S.Bogason ehf. án tilskilinna leyfa. S.Bogason ehf. áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.
Hámarksfjöldi í einstaka pöntun er 100 lengjur (1.000 hylki) og mánaðarlega að hámarki 150 lengjur (1.500 hylki). S.Bogason ehf. áskilur sér rétt il að ógilda pantanir sem fara fram yfir framangreindan hámarksfjölda og endurgreiða neytanda, ef greiðsla hefur verið innt af hendi.

4. GR. NÁKVÆMNI UPPLÝSINGA
Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

5. GR. GREIÐSLULEIÐIR
Hægt er að inna greiðslu af hendi með greiðslukorti. S.Bogason ehf. er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.
Öll verð eru gefin upp með VSK.

6. GR. HEIMSENDING OG FERILL PANTANA
Þegar neytandi verslar í vefverslun S.Bogason ehf. er hægt að velja á milli þess að sækja í verslun eða fá pöntunina heimsenda.
Athugið að fyrst um sinn er ekki hægt að sækja pantanir í en við stefnum á að bæta þeim möguleika við á næstu misserum.
Hægt er að velja um að fá sent með Póstinum eða Samskip
Þegar valið er að fá vöruna heimsenda eða á næsta pósthús er sendingartími að jafnaði 1-3 virkir dagar. Sendingartími er mismunandi eftir því hvar neytandi býr. (nem að annað komi fram á heimasíðunni)
Póstur og Samskip keyra út pantanir utan höfuðborgarsvæðisins. Utan höfuðborgarsvæðis er heimsending einungis í boði á þeim svæðum sem Pósturinn býður upp á. Nánari upplýsingar á postur.is / Samskip.is
Heimsending er einungis í boði innanlands.

7. GR. SKILAFRESTUR / ENDURGREIÐSLA / Ábyrgðamál
Neytandi hefur 20 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í upprunalegu ástandi í óuppteknum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið, hyggist neytandi nýta sér skilarétt sinn. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent neytanda. Vilji neitandi skila vöru er sá möguleiki til staðar en þá greiðir S.Bogason ehf til baka 90% af upphæð vöru sé vara enn í óskemmdum upprunalegum umbúðum og innsigluð, sé neitandi búinn að opna og taka vörur úr upprunalegum umbúðum greiðir S.Bogason ehf 50% af upphæð vöru, kvittun fyrir vörukaupunum er reikningur sem neitandi fékk með vörunni og þarf hún að fylgja með. Kostnaður við að skila vörunni, s.s. sendingarkostnaður, greiðist af neytanda. Endurgreiðsla er framkvæmd 10 virkum dögum eftir að S.Bogason ehf hefur móttekið vöru sem á að skila.
Neytandi er sá sem skráður er sem slíkur á reikningi.
Varðandi ábyrgðir þá telst ábyrgð vera að fullu sé um greinilega galla á vörunni að ræða, hafi neitandi átt við vöruna, þ.e. breytt henni eftir móttöku á annan hátt en framleiðandi sendir vöruna frá sér er ábyrgð með öllu fallin úr gildi og tekur neitandi fulla ábyrgð sjálfur vegna þessa.
Viðbót 7.1 / 01.02.2024 > ef upp kemur galli í vöru eða varan bilar, virkar ekki skyldi, þarf neitandi að skrá sig inn á þjónustuborð sem er að finna á heimasíðu www.sbogason.is
þar þarf neitandi að setja inn eftirfarandi > nafn kaupanda – kt: kaupanda – lýsa bilun/galla – hvað hefur verið gert varðandi lausnir.
S.Bogason ehf svarar skilaboðum á þjónustuborði innan 24 kls. með mögulegri lausn eða hugmynd um næstu skref.

8. GR. GALLI
Ef neytandi kaupir gallaða(r) vöru(r) í vefverslun S.Bogason ehf er boðið upp á viðgerð, nýja(r) vöru(r), afslátt eða endurgreiðslu kaupverðs. Það fer eftir atvikum og eðli gallans hvaða leið er valin hverju sinni. Um rétt neytanda, þ.e.a.s. einstaklingar sem versla í vefverslun S.Bogason ehf., eigi í þágu atvinnurekstrar, vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003. Varðandi rétt fyrirtækja og einstaklinga sem versla í vefverslun S.Bogason ehf. í þágu atvinnurekstrar vísast til laga um lausafjárkaup nr. 50/2000.

9. GR. MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA
Þegar neytandi verslar vöru(r) í vefverslun S.Bogason ehf. þarf að gefa upp kreditkortaupplýsingar og aðrar persónuupplýsingar, þ.e. nafn neytanda, heimilisfang, búsetuland, símanúmer og netfang. Með því að skrá sig í meðlimaklúbb S.Bogason ehf gegnum vefsíðu S.Bogason ehf, og kaupum á vöru(m) í vefverslun félagsins samþykkir neytandi slíka söfnun persónulegra upplýsinga. Ef neytandi hefur ekki skráð sig í meðlimaklúbb S.Bogason ehf í gegnum vefverslunina mun S.Bogason ehf safna sömu upplýsingum og að framan greinir í þeim tilgangi að hægt sé að klára pöntun á vöru(m) í gegnum vefverslunina.
Þegar neytandi skráir sig á póstlista S.Bogason ehf fer netfang neytanda á póstlista. Hægt er að afskrá sig af póstlista S.Bogason ehf með því að smella á vefslóð í tölvupósti sem sendur er á netfang neytanda.
S.Bogason ehf fer með allar persónuupplýsingar af ýtrustu varúð og sem algjört trúnaðarmál.
Upplýsingar frá neytanda verða ekki afhentar né seldar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Upp geta komið tilvik þar sem S.Bogason ehf þarf á aðstoð þriðja aðila til að veita ákveðna þjónustu. Í slíkum tilvikum getur félagið þurft að deila persónuupplýsingum með þriðja aðila til að það fyrirtæki geti veitt S.Bogason ehf, og á endanum neytanda, þjónustu. Má sem dæmi nefna vinnslu á debet- og kreditkortafærslum fyrir S.Bogason ehf. Einnig þarf félagið að láta flutningsaðila fá heimilisfang og símanúmer svo að hann geti sent vöru(rnar) heim til neytanda. S.Bogason ehf hefur einnig gert samning við þriðja aðila um skýjaþjónustu en hún er netþjónusta sem gerir félaginu kleift að nota hugbúnað og tæki hjá skýjaþjónustunni. Slík þjónusta felst m.a. í því að varðveita upplýsingar í netþjónum og veflausnum. Slíkir þjónustuaðilar hafa í gildi viðeigandi stefnur og verkferla til að tryggja að upplýsingar sem þeir meðhöndla séu varðveittar með öruggum hætti hverju sinni.
Greiðsluupplýsingar eru ávallt sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun.
S. Bogason ehf takmarkar persónuupplýsingar sem þriðja aðila er veitt og eru slíkar persónuupplýsingar aðeins veittar í þeim tilgangi að veita neytanda slíka þjónustu. S.Bogason ehf veitir slíkum þriðju aðilum strangt eftirlit til að tryggja friðhelgi viðskiptavina sinna.
S. Bogason ehf notar myndavélaeftirlit við aðsetur sínar. Upptökurnar eru geymdar í dulkóðuðum skrám í allt að 90 daga og þeim eytt eftir það. Ef þær tengjast rekstri máls fyrir dómstólum þá eru þær hugsanlega geymdar lengur. Greiðsluupplýsingar eru ávallt sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun.
Öll meðhöndlun persónuupplýsinga þeirra sem neytandi gefur S.Bogason ehf er í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma. Persónuupplýsingum er fyrst og fremst safnað til þess að hægt sé að versla í vefversluninni og bæta þjónustu við neytanda.
Með því að nota vefsíðu og vefverslun S.Bogason ehf veitir neytandi ótvírætt samþykki sitt og viðurkennir vinnslu og skrá S.Bogason ehf á persónuupplýsingum sínum.

10. GR. VAFRAKÖKUR (E. COOKIES)
“Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. S.Bogason ehf notar þessar upplýsingar m.a. til að bera kennsl á notandann og vita hversu oft hann heimsækir vefsíðuna/vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga.
Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar S.Bogason ehf vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann og bæta hans upplifun.
Vafrakökurnar eru ýmist notaðar fyrir tilteknar þjónustuleiðir eða til þess að safna tölfræðilegum upplýsingum til að bæta vefsíðu S.Bogason ehf sumar vafrakökurnar eru tímabundnar og hverfa því þegar notandinn fer af vefsvæðinu en aðrar haldast lengur inni. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notandans og muna val og/eða aðgerðir hans á vefsvæðinu og muna því fyrri aðgerðir til að gera notandanum auðveldara fyrir að vafra um vefsvæðið. Að auki eru notaðar staðbundnar vafrakökur sem eru tengdar tilteknum markaðsherferðum og hverfa þegar herferðunum lýkur.
Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kjósi að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu S.Bogason ehf, þar á meðal verslunarkerfið.
S.Bogason ehf notar Google Analytics frá Google og Facebook Pixels til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefsvæðið eru ýmsum nafnlausum upplýsingum safnað saman og þær sendar S.Bogason ehf, t.d. frá hvaða vefsvæði er komið, tími og dagsetning komu á vefsvæðið, leitarorð sem notað var og gerð vafra og stýrikerfis. S.Bogason ehf notar þessar upplýsingar svo til að gera endurbætur á vefsvæði sínu notendum sínum til hagsbóta. Google Analytics og Facebook Pixels nota sínar eigin kökur en S.Bogason ehf áskilur sér rétt til að birta notendum vefsvæðisins og klúbbmeðlimum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google Analytics og Facebook Pixels. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakaka og geta þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar slökkt á notkun þeirra.
Með því að nota vefverslun S.Bogason ehf samþykkir neytandi að S.Bogason ehf safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.
Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á
http://www.aboutcookies.org.uk/. Möguleikar neytanda á notkun vefsíðu S.Bogason ehf gætu takmarkast við slíkar breytingar.
Trúnaður i. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.Notkun á persónuupplýsingum ii. Sendingar úr kerfi S.Bogason ehf kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunnarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

11. GR. LÖG OG VARNARÞING
Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjaness. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.

top
X