BRESSER – Þjónusta, bilanir og varahlutir
Mikilvægar upplýsingar fyrir eigendur Bresser-veðurstöðva á Íslandi
Við viljum upplýsa viðskiptavini okkar um að Bresser, framleiðandi veðurstöðvanna,
hefur tekið yfir alla þjónustu fyrir íslenska markaðinn.
Vegna þessara breytinga bendum við öllum eigendum Bresser-veðurstöðva á að hafa beint samband við þjónustudeild Bresser ef upp koma bilanir eða þörf er á varahlutum, aukahlutum eða tæknilegri aðstoð.
Bresser býður upp á sérhæfða þjónustu og ráðgjöf varðandi vörur sínar og getur aðstoðað við bilanagreiningu, tæknilegar fyrirspurnir og útvegun varahluta.
Þegar haft er samband við Bresser
Við mælum með að eftirfarandi upplýsingar séu hafðar tiltækar:
- Tegund og gerð veðurstöðvar
- Vörunúmer eða lotunúmer sem er aftan á skjánum, ef það er til staðar
- Stutt lýsing á bilun eða þeim varahlut sem vantar
- Ljósmynd af búnaðinum, ef við á
Þjónustudeild Bresser
Netfang: service@bresser.de
Símanúmer: +49 2872 80740
Service team Bresser: smella hér
Heimasíða Bresser: www.bresser.de
Við hjá S.Bogason ehf. þökkum viðskiptavinum okkar fyrir viðskiptin og vonum að þessar upplýsingar auðveldi þeim að fá skjóta og faglega þjónustu beint frá framleiðanda.
Athugið að breytingar á þjónustufyrirkomulagi hafa ekki áhrif á rétt viðskiptavina vegna galla eða ábyrgðarmála.
Allar þær beiðnir þurfa að fara beint til service team Bresser og verður farið með þær beiðnir samkv. skilmálum Bresser